
Uppsetning forrita og hugbúnaðar
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr
samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er eða
fá þær sendar sem margmiðlunarboð, sem
tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar tengiaðferðir, svo
145
Forritamappa

sem Bluetooth. Hægt er að nota Nokia Application
Installer í Nokia PC Suite til að setja upp forrit í tækinu.
Táknin í Stjórnanda forrita sýna eftirfarandi:
.sis- eða .sisx-forrit
Java-forrit
forrit er ekki fyllilega uppsett
forrit sett upp á minniskortinu
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit
og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit
með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð
með Java Verified.
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:
●
Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og
seljanda eða framleiðanda forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða upplýsingar
.
Til að sjá upplýsingar um öryggisvottorð forritsins
skaltu velja
Upplýsingar:
, fletta að
Vottorð:
og
síðan
Skoða upplýsingar
.
Sjá
„Vottorðastjórnun“, bls. 154.
●
Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða
endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu
aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað
hvort upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi,
eða öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum
sem var fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega
forritið skaltu fyrst fjarlægja forritið og síðan setja
það upp aftur úr upphaflegu uppsetningarskránni
eða öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp Java-
forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig um að
hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er
tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að velja
aðgangsstað. Þegar þú hleður niður .jar-skránni
geturðu þurft að slá inn notandanafn og lykilorð til
að fá aðgang að miðlaranum. Þú getur fengið
notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða
framleiðanda forritsins.
Til að setja upp forrit eða hugbúnað:
1.
Til að staðsetja uppsetningarskrá skaltu ýta á
og velja
Forrit
>
Stj. forrita
. Að öðrum kosti skaltu
leita að uppsetningarskrám með Skráarstjóra eða
opna skilaboð í
Skilaboð
>
Innhólf
sem
inniheldur uppsetningarskrá.
2.
Í Stjórnun forrita velurðu
Valkostir
>
Setja upp
. Í
öðrum forritum skaltu fletta að
uppsetningarskránni og velja hana til að hefja
uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið
upplýsingar um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú
setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða
vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda
áfram að setja upp forritið ef þú ert viss um uppruna
þess og innihald.
146
Forritamappa

Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í
valmyndinni og velja það. Ef forritið er ekki með
sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í
Forrit
-
möppunni í aðalskjánum.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir
upp eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt
vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins
vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og
virkni tækisins, eða valdið því að það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni
tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið sett upp á
samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni
og valdið því að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til
að viðhalda nægilegu minni skaltu nota Nokia Nseries
PC Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám
og setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu
nota skráastjórnunina til að eyða
uppsetningarskránum úr minni tækisins. Ef .sis-skráin
hefur verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða
skilaboðunum úr innhólfinu.