
öryggisupplýsingar
Þegar þú stillir þráðlaust staðarnet í heimahúsi skaltu
kveikja á dulkóðuninni í aðgangsstaðatækinu og svo í
94
Heimanet

hinum tækjunum sem eru tengd við það. Nánari
upplýsingar er að finna í fylgiskjölum tækjanna. Halda
skal öllum númerum leyndum og geyma þau á
öruggum stað fjarri tækjunum.
Hægt er að skoða og breyta stillingum
netaðgangsstaðarins fyrir þráðlausa staðarnetið í
tækinu.
Ef þú notar sértæka stillingu til að búa til heimanet með
samhæfu tæki skaltu nota eina af
dulkóðunaraðferðunum í
Öryggi þráðl. staðarnets
þegar þú stillir netaðgangsstaðinn. Þetta minnkar
líkurnar á að óviðkomandi komist inn á kerfið.
Tækið lætur þig vita ef annað tæki reynir að tengjast
við það og heimanetið. Ekki samþykkja beiðnir um
tengingu frá tækjum sem þú þekkir ekki.
Ef þú notar þráðlaust staðarnet á netkerfi án
dulkóðunar skaltu slökkva á samnýtingu skráa með
öðrum tækjum, eða velja að samnýta ekki einkaskrár.