
Lengri líftími rafhlöðu
Margar aðgerðir tækisins auka orkuþörf og draga úr
líftíma rafhlöðunnar. Til að spara rafhlöðuna skaltu
hafa eftirfarandi í huga:
●
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar
aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar
rafhlöðuorku. Slökktu á Bluetooth þegar þú notar
það ekki.
●
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet (WLAN) eða
leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan
aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar
rafhlöðuorku. Slökkt er á þráðlausum staðarnetum
þegar þú ert ekki að reyna að tengjast eða ert ekki
með tengingu við aðgangsstað eða að leita að
tiltæku netkerfi. Til að spara rafhlöðuna getur þú
stillt Nokia-tækið þannig að það leiti sjaldan eða
ekki að tiltækum netkerfum í bakgrunni.
Sjá
„Þráðlaust staðarnet“, bls. 35.
Þegar
Leitað að
staðarnetum
er stillt á
Aldrei
birtist táknið fyrir
tiltæk þráðlaus staðarnet ekki í biðstöðu. Þó er hægt
að leita handvirkt að tiltækum þráðlausum
staðarnetum og tengjast þeim eins og vanalega.
●
Ef þú hefur stillt
Pakkagagnatenging
á
Ef
samband næst
í tengistillingum og ekkert
pakkagagnasamband (GPRS) er til staðar reynir
tækið reglulega að koma á pakkagagnatengingu. Til
að lengja starfhæfan tíma tækisins velurðu
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
●
Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum
þegar þú flettir á ný svæði á kortinu en það eykur á
orkuþörfina. Hægt er að koma í veg í fyrir sjálfvirkt
niðurhal á nýjum kortum.
Sjá „Kort“, bls. 52.
●
Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur a þínu
svæði verður tækið reglulega að skanna tiltæk
símkerfi. Þetta eykur orkuþörfina.
Ef símkerfið er stillt á tvöfalda stillingu í
símkerfisstillingum leitar tækið að UMTS-kerfinu. Til
að nota aðeins GSM-kerfi skaltu ýta á
og velja
Verkfæri
>
Stillingar
>
Sími
>
Símkerfi
>
Símkerfi
>
GSM
.
●
Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í
skjástillingunum er hægt að stilla eftir hve langan
tíma baklýsingin slekkur á sér og stilla ljósnemann
sem greinir birtuskilyrði og aðlagar skjábirtuna í
samræmi við þau. Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Almennar
>
Sérstillingar
>
Skjár
og
Tímamörk ljósa
eða
Skjábirta
.
●
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar
rafhlöðuorku. Til að loka öllum forritum sem eru
ekki í notkun skaltu halda inni
, fletta að forriti á
listanum og ýta á C .
Ekki er slökkt á tónlistarspilaranum þegar ýtt er á
C. Til að loka Tónlistarspilaranum skaltu velja hann
af listanum og
Valkostir
>
Hætta
.
18
Hj
álp

●
Til að gera orkusparnaðarstillinguna virka ýtirðu á
rofann og velur
Virkja orkusparnað
. Til að gera
orkusparnaðarstillinguna óvirka ýtirðu á rofann og
velur
Óvirkja orkusparnað
. Ekki er víst að hægt sé
að breyta stillingum í tilteknum forritum þegar
orkusparnaðarstillingin er virk.