Símtal í bið
Þú getur svarað símtali meðan annað símtal er í gangi.
Til að ræsa aðgerðina símtal í bið velurðu
Stillingar
>
Sími
>
Símtöl
>
Símtal í bið
(sérþjónusta).
Ýttu á hringitakkann til að svara símtali í bið. Fyrra
símtalið er sett í bið.
Til að skipta á milli símtalanna tveggja skaltu velja
Víxla
. Til að tengja saman aðila sem er að hringja í þig
eða símtal í bið og virkt símtal, og aftengjast sjálf/ur,
skaltu velja
Valkostir
>
Færa
. Virku símtali er slitið
með því að ýta á endatakkann. Veldu
Valkostir
>
Slíta
öllum símtölum
til að slíta báðum símtölunum.