Umhverfi
Aðeins er hægt að velja umhverfisstillingar fyrir
aðalmyndavélina.
Umhverfi hjálpar þér til að finna réttar stillingar fyrir lit
og lýsingu miðað við aðstæður. Stillingarnar fyrir hvert
umhverfi henta því sérstaklega.
Sjálfgefin stilling við myndatöku er
Sjálfvirkt
og við
myndupptöku
Sjálfvirkt
(bæði táknuð með ).
Til að breyta stillingunni velurðu
Myndumhverfi
á
tækjastikunni og svo stillingu.
Til að búa til þína eigin umhverfisstillingu fyrir tiltekið
umhverfi flettirðu að
Notandi tilgr.
og velur
Valkostir
>
Breyta
. Í umhverfisstillingum notanda er
hægt að velja mismunandi stillingar fyrir lýsingu og liti.
Til að afrita stillingar úr annarri umhverfisstillingu
skaltu velja
Byggt á umhverfi
og svo stillinguna. Ýttu
á
Til baka
til að vista breytingarnar og fara aftur í
umhverfislistann. Kveikt er á eigin umhverfisstillingu
með því að fletta að
Notandi tilgr.
, ýta á skruntakkann
og velja
Velja
.