Upptaka myndskeiða
1.
Ef myndavélin er stillt á myndatöku velurðu
myndupptöku á tækjastikunni.
2.
Ýttu á myndatökutakkann til að hefja upptökuna.
Rauða upptökutáknið ( ) birtist og það heyrist
tónn.
3.
Hægt er að gera hlé á upptökunni hvenær sem er
með því að ýta á
Hlé
. Veldu
Áfram
til að halda
áfram. Ef þú gerir hlé á upptöku og ýtir ekki á neinn
takka innan einnar mínútu stöðvast upptakan.
Notaðu aðdráttartakka tækisins til að auka eða
minnka aðdrátt.
4.
Ýttu á myndatökutakkann til að stöðva upptöku.
Myndskeiðið vistast sjálfkrafa í Myndum.
Hámarkslengd hreyfimyndar er um 30 sekúndur
með samnýtingargæðum og 90 mínútur með
öðrum gæðastillingum.
Kveikt er á fremri myndavélinni með því að velja
Valkostir
>
Nota myndavél 2
. Myndupptaka er ræst
með því að ýta á skruntakkann. Aðdráttur er aukinn
eða minnkaður með því að fletta upp eða niður.