Myndprentun
Til að prenta myndir með Image Print skaltu velja mynd
sem á að prenta og síðan prentvalkostinn í Myndum,
myndavélinni, myndvinnslunni eða á myndskjánum.
Notaðu myndprentun til að prenta myndir með
samhæfðu USB-tengi eða Bluetooth. Einnig er hægt að
prenta myndir um þráðlaust staðarnet. Hafi samhæfu
minniskorti verið komið fyrir er hægt að geyma myndir
á minniskortinu og prenta þær út á samhæfum
prentara.
Aðeins er hægt að prenta myndir sem eru á .jpg-sniði.
Myndirnar sem teknar eru með myndavélinni eru
sjálfkrafa vistaðar á .jpeg-sniði.