
Skjáir N-Gage
N-Gage forritið samanstendur af fimm mismunandi
hlutum.
Heim opnast þegar þú ræsir N-Gage forritið. Þú
getur byrjað að spila eða haldið áfram leiknum sem þú
spilaðir síðast, athugað N-Gage stigin þín, fundið fleiri
leiki, lesið skilaboð eða tengst við N-Gage vin sem getur
spilað.
Í Leikirnir mínir geturðu spilað og haldið utan um
leiki sem þú hefur hlaðið niður í tækið þitt. Hægt er að
setja upp og eyða leikjum, skoða og gefa leikjum, sem
þú hefur spilað, einkunn og benda N-Gage vinum
þínum á þá.
Í Mitt snið geturðu unnið með upplýsingarnar þínar
um sniðið þitt og haldið utan um N-Gage leikjasöguna
þína.
Í Vinir mínir geturðu boðið öðrum N-Gage
leikmönnum á vinalistann þinn og séð hvort þeir séu á
netinu og geta spilað. Þú getur einnig sent skilaboð til
N-Gage vinanna þinna.
104
N-Gage

Í sýningarsalnum geturðu fundið upplýsingar um
N-Gage leiki, þ.m.t. skjámyndir og einkunnagjöf
leikmanna. Þú getur einnig prófað nýja leiki með því
að hlaða niður prufuútgáfum af leikjum eða aukið
ánægjuna af því að spila með aukaefni leiks fyrir leiki
sem eru þegar í tækinu.