Spilaranafn búið til
Hægt er að hlaða niður, kaupa og spila leiki án þess að
vera með spilaranafn, en mælt er með að nafn sé búið
til. Spilaranafn gerir þér kleift að taka þátt í N-Gage
hópi, tengjast öðrum spilurum og deila árangri,
tillögum og athugasemdum með öðrum. Einnig þarftu
spilaranafn til að geta flutt notandalýsinguna þína og
N-Gage stig yfir í annað tæki.
Þegar þú ræsir N-Gage forritið og tengist N-Gage
þjónustunni í fyrsta skipti ertu beðinn um að búa til N-
Gage spilaranafn. Þú getur t.d. tengst netinu með því
að gera þig tiltækan í leik og velja
Options
>
Set
Availability
>
Available to Play
.
Ef þú ert kominn með N-Gage spilaranafn velurðu Í
áskrift, og slærð inn notandanafnið þitt og lykilorðið
til að skrá þig inn.
Til að búa til nýtt spilaranafn:
1.
Veldu Skrá nýja áskrift.
2.
Sláðu inn fæðingardag þinn, spilaranafn og lykilorð.
Ef einhver annar er kominn með spilaranafnið
kemur N-Gage með lista yfir svipuð nöfn.
3.
Til að skrá spilaranafnið slærðu inn upplýsingar um
þig, lest og samþykkir skilmála og skilyrði og velur
Register
.
Einnig geturðu búið þér til spilaranafn á vefsvæði N-
Gage, www.n-gage.com.
Þegar þú hefur búið til spilaranafn breytirðu stillingum
og persónulegum upplýsingum í einkaflipanum í
Notandalýsingunni.
Gagnaflutningsgjöld kunna að vera innheimt ef
spilaranafn er búið til í tækinu þínu.