Stillingar fyrir tölvupóst
Til að geta notað tölvupóstinn þarftu að vera með
gildan internetaðgangsstað í tækinu og setja inn réttar
tölvupóstsstillingar.
Sjá „Aðgangsstaðir“, bls. 159.
Þú verður að vera með pósthólf. Fylgdu
leiðbeiningunum frá ytra pósthólfinu þínu og
internetþjónustuveitunni.
Ef þú velur
Nýtt pósthólf
á aðalvalmynd skilaboða en
hefur ekki sett upp tölvupóstsreikning er beðið um að
þú gerir það. Til að tilgreina tölvupóstsstillingarnar
með viðkomandi hjálparforriti velurðu
Byrja
.
Þegar þú býrð til nýtt pósthólf kemur heitið sem þú
gefur því í stað Nýtt pósthólf á aðalvalmynd skilaboða.
Hægt er að vera með allt að sex pósthólf.