
Þráðlausar staðarnetstengingar
Áður enþú getur notað þráðlaust staðarnet verður að
búa til internetaðgangsstað (IAP) fyrir nettengingar.
Notaðu aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem krefjast
tengingar við internetið.
Sjá „WLAN-
netaðgangsstaðir“, bls. 37.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr
hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum
þínum án heimildar.
Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú
býrð til gagnatengingu með því að nota
netaðgangsstað. Þráðlausa staðarnetstengin er rofin
þegar þú lokar gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali
stendur eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er
hægt að tengjast við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust
staðarnet í einu, en nokkur forrit geta hins vegar notað
sama aðgangsstaðinn.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt
fyrir að tækið sé í ótengdu sniði (ef það er í boði).
Mundu að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum
þegar þú kemur á og notar þráðlausa
staðarnetstengingu.
Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem
auðkennir tækið þitt skaltu slá inn
*#62209526# þegar tækið er í biðstöðu.