Pörun tækja
Til að parast við samhæf tæki og sjá hvaða tæki eru
pöruð opnarðu aðalskjá Bluetooth og flettir til hægri.
Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1 til 16
tölustafir) og biðja eiganda hins tækisins um að nota
sama lykilorð. Tæki sem ekki eru með notandaviðmót
eru með fast lykilorð. Lykilorðið er aðeins notað einu
sinni.
1.
Parast er við tæki með því að velja
Valkostir
>
Nýtt
parað tæki
. Tæki sem eru innan svæðisins birtast.
2.
Veldu tæki og sláðu inn lykilorðið. Slá verður sama
lykilorð inn í hitt tækið.
3.
Sumir hljóðaukahlutir tengjast tækinu sjálfvirkt
eftir pörun. Flettu að öðrum kosti að aukahlutnum
og veldu
Valkostir
>
Tengjast við hljóðtæki
.
Pöruð tæki eru auðkennd með í tækjaleitinni.
Til að tilgreina tæki sem heimilt eða óheimilt skaltu
fletta að því og velja svo úr eftirfarandi valkostum:
●
Stilla sem heimilað
— Hægt er að koma á tengingu
milli tækisins þíns og hins tækisins án vitneskju
þinnar. Ekki þarf að samþykkja eða heimila
tenginguna sérstaklega. Notaðu þessa stillingu fyrir
þín eigin tæki, s.s. samhæft höfuðtól eða tölvu, eða
tæki þeirra sem þú treystir. táknar samþykkt tæki
á skjá paraðra tækja.
●
Stilla sem óheimilað
— Samþykkja þarf beiðnir
um tengingu frá þessu tæki sérstaklega hverju sinni.
Hætt er við pörun með því að velja tækið og síðan
Valkostir
>
Eyða
.
Hætt er við allar paranir með því að velja
Valkostir
>
Eyða öllum
.