Leiðbeiningar um sannprófun
á rafhlöðum frá Nokia
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi
þitt. Til að ganga úr skugga um að þú notir ósvikna
Nokia rafhlöðu skaltu kaupa hana af viðurkenndum
söluaðila Nokia og skoða heilmyndarmiðann líkt og
lýst er í eftirfarandi skrefum:
Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það
ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé
ósvikin. Hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að
rafhlaðan þín sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki
nota hana heldur fara með hana til viðurkennds
þjónustu- eða söluaðila Nokia og leita aðstoðar.
Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna
hvort rafhlaðan sé ósvikin. Ef ekki er hægt að staðfesta
sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til söluaðilans.