
Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í
vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða
ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða
eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með
læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða
búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða
setja tækið upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða
viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns
ábyrgð sem kann að vera á tækinu. Ganga skal
reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni
rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva,
lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið,
hluta úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið
loftpúða skal hafa hugfast að loftpúðar blásast út af
miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn
uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið
yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið loftpúðans. Ef
þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn
þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í
flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél
getur skapað hættu við stjórn flugvélarinnar, rofið
þráðlaust símasamband og verið ólöglegt.