Lækningatæki
Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar
með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni
lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa
skal samband við lækni eða framleiðanda
lækningatækisins til þess að komast að því hvort það
sé nægilega vel varið fyrir utanaðkomandi
útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga.
Slökkva skal á tækinu í námunda við
heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis
kveða á um að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða
heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur
verið næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.