
Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á
sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á
skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft
telst vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að
drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum
getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér
slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á tækinu á
eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á
175
Viðbótaröryggisupplýsingar

bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun
útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar
sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram,
efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja.
Svæði þar sem sprengihætta er mikil eru oftast vel
auðkennd, en þó ekki alltaf. Þau eru m.a. neðri þilför
skipa, aðstaða til efnaflutninga eða geymslu og svæði
þar sem efni líkt og korn, ryk eða málmagnir eru í lofti.
Þú ættir að kanna það hjá framleiðendum farartækja
sem nota jarðgas (líkt og própan eða bútan) til að
ákvarða hvort hægt sé að nota þetta tæki á öruggan
hátt nálægt þeim.