
UPPLÝSINGAR UM VOTTUN (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um
áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það
er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af
útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur
mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af
óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda
176
Viðbótaröryggisupplýsingar

öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð
aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra
tækja er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption
Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum
ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á
hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar
í hefðbundnum notkunarstöðum þegar tækið sendir af
mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum.
Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur verið
lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að
nota aðeins þann styrk sem þarf til að ná sambandi við
símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu
langt notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt
viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir
notkun tækisins við eyra 1,40 W/kg.
Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé
annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa
sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og
tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í
upplýsingum um vörur á www.nokia.com.
177
Viðbótaröryggisupplýsingar